Ítarefni

Hinn eini tilgangur peninga

Peningar, eða fjármagn, hafa í raun aðeins einn tilgang, en það er að auðvelda okkur að skiptast á raunverulegum verðmætum. Þó við lítum oftast þannig á það að peningar og fjármagn sé það sama, þá er það nú þannig að aðeins um 5 – 10% þess fjármagns sem er í umferð telst vera peningar, þ.e. seðlar og mynt. Restin, eða um 90-95% fjármagnsins er bundið í bankakerfinu m.a. í formi bankainnistæðna.

Lýsing Leo Tolstoy á skuldaánauð Fídjíbúa

Fidjíbúar búa í Pólinesíu, á eyjum í suður Kyrrahafi. Allur eyjaklasinn, útskýrir prófessor Yánzhul, samanstendur af smáeyjum sem samtals eru um 20.720 ferkílómetrar. Einungis er búið á helmingi þeirra og telur þjóðin 150.000 sálir auk 1.500 hvítingja. Frumbyggjarnir, sem risu úr villimennsku fyrir margt löngu, eru þekktir fyrir dug sinn og eru þess megnugir að vaxa og dafna eins og þeir hafa sýnt með því að verða fljótt góðir bændur og húsdýraræktendur.

Goðsögnin um peningana afhjúpuð

Sprenging hafði tætt í sundur skip þeirra. Hver og einn hélt dauðahaldi í hvern þann bút úr brakinu sem flaut um hafflötinn. Þegar allt var yfirstaðið voru fimm eftir, fimm húkandi á fleka sem öldurnar báru eftir duttlungum sínum. Önnur fórnarlömb harmleiksins voru hvergi sjáanleg.

Í marga klukkutíma skimuðu augu þeirra sjóndeildarhringinn. Myndu einhver nálæg skip koma auga á þá? Myndi flekaræfillinn þeirra skila þeim á vinsamlega strönd?

Syndicate content