Utanríkismál

Umbótahreyfingin - Nýtt samfélag leggur áherslu á að Ísland muni aldrei, að fyrra bragði, fara með ófriði á hendur öðrum þjóðum, en áskilur sér rétt til að verja sig verði á landið ráðist.

Umbótahreyfingin - Nýtt samfélag lítur til þess að í raun eigi þjóðir enga vini, heldur hagsmuni. Hefur þetta berlega komið fram í samskiptum "vina" landsins við Íslendinga eftir hrun efnahagskerfisins. Íslendingar hafa ekki borið gæfu til að "vinir" þeirra stæðu með þeim í þrengingum sínum og bersýnilegt að "vinaþjóðir" eru tilbúnar að ganga mjög nærri lífsviðurværi Íslendinga til að gæta hagsmuna sinna.

Umbótahreyfingin - Nýtt samfélag leggur áherslu á að Íslendingar haldi góðu sambandi við allar þjóðir, en einskorði sig ekki við fámennan hóp ríkja.

Umbótahreyfingin - Nýtt samfélag telur að Íslendingar hafi upp á ýmislegt að bjóða öðrum þjóðum, hluti sem munu ávallt opna Íslendingum nýjar dyr og ný tækifæri. Það sé aðeins með þröngsýni og gömlum hugmyndum sem við munum loka dyrum að framtíðinni.