Tilgangur hreyfingarinnar

Umbótahreyfingin er stofnuð í þeim tilgangi að stuðla að breyttu umhverfi í íslensku samfélagi.

Það er skilningur félagsmanna að rót efnahagsvanda samfélaga sé bundin í því kerfi sem viðgengst í dag. Tilgangur félagsins er að koma á nýju fjármagnskerfi þar sem aukin hagsæld leiðir til eignar í stað skuldar.

Umbótahreyfingin - Nýtt samfélag mun leggja áherslu á að kynna hugmyndir sínar fyrir ráðamönnum og félagssamtökum sem gætu leitt þær í verk. Umbótahreyfingin - Nýtt samfélag leitar ekki sérstaklega eftir að komast á þing, heldur er markmiðið að koma breytingunum á. Umbótahreyfingin - Nýtt samfélag mun hins vegar sækja á þing, komi í ljós að það sé eina leiðin til að koma á þessum breytingum.