Stefna

Markmið

Markmið Umbótahreyfingarinnar - Nýs samfélags er að skapa á Íslandi umhverfi þar sem aukin hagsæld berst almenningi í formi eignar, en ekki skuldar eins og í núverandi fjármagnskerfi. Samfélag þar sem einstaklingarnir búa við frelsi til að geta leitað sér þeirra hamingju sem þeir óska sér, svo lengi sem það skaðar ekki þriðja aðila.

Framkvæmda-, löggjafar- og dómsvald

Því er haldið fram að á Íslandi sé í framkvæmd hugmynd Montesquieu um þrískiptingu valdsins, að þar sé til staðar aðskilið framkvæmdar-, löggjafara- og dómsvald. En slíku er ekki fyrir að fara. Eins kaldhæðnislega og það hljómar, þá er reyndin sú að Íslendingar kjósa yfir sig einræði á um fjögurra ára fresti.

Nýtt fjármálakerfi

Þegar samfélag hefur afsalað sér fjármagnsframleiðslunni til einkaaðila, þá munu fulltrúar þess ávallt gæta hagsmuna þessara sömu einkaaðila þvert á hagsmuni samfélagsins.

Með núverandi fjármagnskerfi hefur fjármagnsframleiðslunni verið afsalað til einkaaðila og hafa þessir einkaaðilar tekið ríkisstjórn landsins og þing í gíslingu. Þrátt fyrir að fjármálafyrirtæki séu orsakavaldar núverandi ástands, þá hefur þing og ríkisstjórn unnið að því að gæta hagsmuna fjármálafyrirtækjanna þvert á hagsmuni almennings.

Hið nýja Alþingi (eða Alþingi 2.0)

Lýðræði þýðir í sinni einföldustu mynd, staður þar sem lýðurinn, eða fjöldinn, ræður. Við búum við lýðræði á Íslandi, eða því er alla vega haldið fram á hátíðarstundum. Raunveruleikinn er hins vegar ekki svo augljós.

Á allt að fjögurra ára fresti er kosið til Alþingis og virðist sem svo að við það afsali almenningur valdi sínu til að ráða framtíð sinni. Þeir sem kosnir eru fulltrúar almennings virðast þá um leið missa alla tenginu við almenning og þjónusta við sérhagsmunahópa tekur völdin.

Utanríkismál

Umbótahreyfingin - Nýtt samfélag leggur áherslu á að Ísland muni aldrei, að fyrra bragði, fara með ófriði á hendur öðrum þjóðum, en áskilur sér rétt til að verja sig verði á landið ráðist.

Aðgerðaráætlun vegna efnahagsástands

Umbótahreyfingin - Nýtt samfélag telur að nú sé ekki hægt að bíða lengur með aðgerðir til handa heimilum landsins. Fjöldinn allur af einstaklingum og fjölskyldum er að tapa húsnæði sínu, ekki vegna óráðsíu og bruðls, heldur vegna þess að ytri aðstæður og aðgerðaleysi stjórnvalda hefur komið þeim í vandræði. Nú fer í hönd tímabil þar sem einstaklingar sem ekkert hafa til unnið, munu tapa eigum sínum í slíku magni að vart verður séð að samfélagið muni jafna sig á því nema yfir mjög langan tíma.

ESB

Umbótahreyfingin - Nýtt samfélag telur, með hliðsjón til megin markmiðs hreyfingarinnar, að aðild að ESB og upptaka euro þjóni ekki hagsmunum samfélagsins.

Til að hægt sé að breyta um fjármagnskerfi, þá er nauðsynlegt fyrir Íslendinga að halda eigin mynt, en upptaka euro mun gera að engu, möguleikann á að koma á breyttu kerfi. Euro svæðið er skipulagt samkvæmt hinu gamla kerfi og ekki sjáanlegt að á því séu nokkurra breytinga að vænta.

Orkumál

Umbótahreyfingin - Nýtt samfélag leggur áherslu á að Íslendingar verði sjálfbærir með alla orkunýtingu og í því sambandi verði leitað leiða til að bílafloti landsins verði knúinn endurnýtjanlegri orku sem framleidd er á Íslandi.

Umbótahreyfingin - Nýtt samfélag telur nauðsynlegt, í þeim tilgangi að viðhalda sjálfbærni í orkumálum, að Íslendingar séu í forsvari fyrir allar auðlindir landsins.

Syndicate content