Opinn fundur á laugardaginn 5. febrúar
Jón Lárusson mun verða gestur á opnum fundi hjá Frjálslynda flokknum að Lynghálsi 3 klukkan 13:00 á laugardaginn 5. febrúar nk.
Mun Jón þar fjalla um eðli núverandi fjármálakerfis og hvernig það étur samfélagið innan frá. Mun hann einnig fjalla um þær lausnir sem mögulegar eru og þurfa að komast á svo samfélagið geti haldið áfram í átt til bjartari framtíðar.
Eru allir hvattir til að mæta.
Einnig mælum við með því að fólk horfi á myndbandið hér við hliðina, en þar er sýndur fyrirlestur sem haldinn var í sumar og skýrir núverandi fjármálakerfi og þær lausnir sem til eru.