Fundir
Vel heppnaður fundur í dag
Fundurinn í dag var vel heppnaður og spunnust margar og áhugaverðar umræður í kjölfarið.
Fundarmenn voru sammála um að breytinga er þörf og að það sé ekki hægt að draga þær mikið lengur. Það er ekki hægt að bíða þess að ríkisstjórn eða aðrir fulltrúar þjóðarinnar taki af skarið þar sem þeir eru um of tengdir ríkjandi sérhagsmunahópum. Voru fundarmenn almennt sammála um að breytingin þyrfti að koma neðanfrá.
Opinn fundur á laugardaginn 5. febrúar
Jón Lárusson mun verða gestur á opnum fundi hjá Frjálslynda flokknum að Lynghálsi 3 klukkan 13:00 á laugardaginn 5. febrúar nk.
Mun Jón þar fjalla um eðli núverandi fjármálakerfis og hvernig það étur samfélagið innan frá. Mun hann einnig fjalla um þær lausnir sem mögulegar eru og þurfa að komast á svo samfélagið geti haldið áfram í átt til bjartari framtíðar.
Myndband af fundi Umbóthreyfingarinnar þann 23. júní 2010
Athugið að myndbandið tekur smá stund að byrja.
Mikill áhugi hjá fundarmönnum á miðvikudaginn
Mikil ánægja var með fundinn sem haldinn var á miðvikudaginn. Var ánægjulegt að sjá hversu margir komu klukkan 19:00, á kynninguna sem endurtekin var frá því á þriðjudaginn 15. júní. Var þar bæði um að ræða einstaklinga sem höfðu verið á þriðjudaginn, en ekki síður nýja einstaklinga sem vildu kynna sér málið.
Breyting á fundartíma þann 23. júní 2010
Við höfum verið beðnir um að endurtaka kynningarfundinn frá því í síðustu viku vegna mikils áhuga.
Því hefur verið ákveðið að endurtaka hann á morgun, miðvikudag 23. júní kl. 19:00, áður en fyrirhugaður vinnufundur byrjar kl. 20:00 . Við hvetjum ykkur eindregið að benda fólki sem þið þekkið á fundinn.
Hlökkum til að sjá ykkur.
Vinnufundur miðvikudaginn 23. júní
Haldinn verður vinnufundur þann 23. júní nk. kl. 20:00. Verður fundurinn haldinn í Höfðatúni 12 og eru allir áhugasamir velkomnir.
Fundur um nýtt fjármálakerfi 15. júní 2010
Þriðjudaginn 15. júní kl. 20:00 verður haldinn fyrirlestur á vegum Umbótahreyfingarinnar í Höfðatúni 12, þar sem kynntar verða hugmyndir að nýju fjármálakerfi. Umbótahreyfingin telur nýtt fjármálakerfi einu raunhæfu leiðina til að binda enda á núverandi ástand með raunverulegum lausnum.
Núverandi fjármálakerfi getur aldrei orðið til neins annars en aukinnar skuldsetningar almennings og ríkis með þeim afleiðingum að raunveruleg værðmæti leita á hendur sífellt færri einstaklinga og félaga.
Fyrsti fundur Umbótahreyfingarinnar - Nýs samfélags
Fyrsti fundur Umbótahreyfingarinnar - Nýs samfélags var haldinn fimmtudaginn 5. nóvember sl. Farið var yfir hugmyndafræðina á bakvið hið nýja fjármálakerfi sem Umbótahreyfingin - Nýtt samfélag vill innleiða. Einnig var farið yfir mögulegar leiðir til kynningar á hreyfingunni og þeim hugmyndum sem liggja að baki hinu nýja fjármálakerfi.
Gert er ráð fyrir að annar fundur verði haldinn bráðlega, þar sem haldið verði áfram að skýra út þær hugmyndir sem liggja að baki hinu nýja fjármálakerfi.