Við erum lykillinn að framtíðinni
Jón Lárusson benti á það í morgunþætti Útvarps Sögu mánudaginn 5. desember, að við værum lykillinn að framtíð okkar. Það væri okkar að vinna verkið, það gerir það enginn annar. Benti hann á nauðsyn þess að við sem samfélag ákveðum þá framtíð sem við viljum sjá, því án hennar skipti engu máli hvert við héldum.
Ef við ákveðum ekki framtíðina sjálf, þá gerir það einhver fyrir okkur og það er ekki víst að hans sýn sé eitthvað sem við sem samfélag viljum sjá, eða er samfélaginu yfir höfuð til góða. Benti hann einnig á að frelsið kostar ekkert, en ef við glötum því, þá er dýrt að endurheimta það.
Vitnaði Jón í upplýsingar á vef ESB og sjá má í bréfi sem Umbótahreyfingin sendi Össuri Skarphéðsinssyni utanríkisráðherra. Bréfi sem ekki hefur verið svarað, en hér er hægt er að skoða bréfið..
Kom þar fram að verið væri að ljúga að almenningi og að það væri nauðsynlegt að almenningur temdi sér gagnrýna hugsun. Það væri ekki allt sem sýndist og að það væru hópar sem hefðu fjárhagslegan ávinning af því að halda aftur af sannleikanum.
Hægt er að hlusta á þáttinn með því að nota vefspilarann hér fyrir neðan.