Vel heppnaður fundur í dag
Fundurinn í dag var vel heppnaður og spunnust margar og áhugaverðar umræður í kjölfarið.
Fundarmenn voru sammála um að breytinga er þörf og að það sé ekki hægt að draga þær mikið lengur. Það er ekki hægt að bíða þess að ríkisstjórn eða aðrir fulltrúar þjóðarinnar taki af skarið þar sem þeir eru um of tengdir ríkjandi sérhagsmunahópum. Voru fundarmenn almennt sammála um að breytingin þyrfti að koma neðanfrá.
Þrátt fyrir að margir telji fjármál eitthvað miður skemmtilegt og eitthvað sem beri að forðast í lengstu lög, þá er fólk að vakna og átta sig á því að það er ekki lengur hægt að forðast umræðuna um fjármál. Það verði að taka afstöðu
Meirihluti þjóðarinnar er í erfiðum málum vegna ástandsins og það verður að grípa inní ef ekki á að fara illa.
Rætt var um nauðsyn þess að almenningur þyrfti að leggja til hliðar ímyndaðar sérþarfir og taka höndum saman til að skapa hér samfélag sem við getum öll verið stolt af.