Það er til lítils að flýja vandann
Það var ekki hjá því komist að ræða ástandið í Grikklandi í morgunþætti Útvarps Sögu í morgun, en hræringarnar þar ætla engan endi að taka. Vísaði Jón til þess að stór hluti vandans hjá Grikkjum er til kominn vegna þess að fyrri lán ríkisstjórnarinnar grísku fóru í að fóðra innistæðueigendur og banka, sem allir fluttu fjármagnið beint til Luxembourgar. Grikkland er því, þökk sé frjálsu flæði fjármagns og sameiginlegri mynt, uppiskroppa með lausafé. Núverandi innspýting kemur til með að hafa alveg jafn lítil áhrif, verði ekki komið í veg fyrir slíkan flótta.
Jón benti á að það þýðir ekkert að flýja vandann, hann lagast ekkert við það. Hins vegar benti hann á að stundum er lausnin nær en okkur grunar, við eigum það hins vegar til að leita of langt um skammt.
Ítrekaði Jón þá einföldu staðreynd, að það er ekki hægt að lækna sjúkling ef ekki er vitað hvað hrjáir hann. Þess vegna munum við aldrei geta lagað ástandið, fyrr en við áttum okkur á því hver sé raunveruleg orsök ástandsins.
Hægt er að hlusta á þáttinn með því að nota vefspilarann hér fyrir neðan.
