Setjum markmið og horfum til framtíðar, innihaldið hjá Jóni Lárussyni á Útvarpi Sögu þann 03.10.2011
Jón lagði á það áherslu að almenningur horfði til framtíðar og léti af fortíðarhyggjunni sem hann taldi hafa ráði um of áherslunum í landinu. Sagði hann nauðsynlegt að almenningur setti sér markmið og í kjölfarið væri haldið til framtíðar.
Skýrði hann helstu hugmyndir Umbótahreyfingarinnar, til handa þrískiptingu valdsins, auknu lýðræði og breyttu fjármálakerfi.
Taldi hann nauðsynlegt að almenningur hætti að mótmæla og byrjaði að krefjast. Taldi hann nauðsynlegt að þessi áherslubreyting yrði í samfélaginu svo halda mætti áfram uppbyggingunni sem þyrfti að koma til.
Við búum við það í dag að almenningur er orðinn þreyttur á aðgerðarleysinu, en hefur um leið ekki fengið almenninlegar upplýsingar um það hvað stendur til boða. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir forsvarsmanna Umbótahreyfingarinnar, hefur ekki tekist að koma hugmyndum Umbótahreyfingarinnar á framfæri í helstu fjölmiðlum, utan Útvarps Sögu.
Er augljóst að nýrra leiða er þörf og mun Umbótahreyfingin því leita leiða til að koma hugmyndunum á framfæri eftir öðrum leiðum.
Hægt er að hlusta á þáttinn með því að nota vefspilarann hér fyrir neðan.
