Mikill áhugi hjá fundarmönnum á miðvikudaginn

Mikil ánægja var með fundinn sem haldinn var á miðvikudaginn. Var ánægjulegt að sjá hversu margir komu klukkan 19:00, á kynninguna sem endurtekin var frá því á þriðjudaginn 15. júní. Var þar bæði um að ræða einstaklinga sem höfðu verið á þriðjudaginn, en ekki síður nýja einstaklinga sem vildu kynna sér málið.

Eftir áhugaverðar umræður, var haldinn vinnufundur þar sem þeir sem vildu gátu tekið þátt í mótandi hópastarfi. Var mjög ánægjulegt að sjá hversu margir voru tilbúnir að leggja hönd á plóginn og vekur þetta jákvæðar væntingar til starfsins sem er framundan.

Ætlunin er að byggja upp verkefnahópa í ágúst og stendur viljinn til þess að í byrjun september verði komin góð mynd á starfið sem óhjákvæmilega liggur framundan.