Lýðræði og breytt stjórnarfar umræðuefnið hjá Jóni Lárussyni á Útvarpi Sögu þann 19.09.2011
Sem og síðustu mánudaga, þá var Jón Lárusson gestur morgunþáttar Útvarps Sögu. Í þættinum í morgun ræddi Jón um mikilvægi þess að almenningur hafi bein áhrif á stjórn landsins og að svo kallað þingræði er ekki lýðræði, heldur frekar form einræðis.
Benti Jón á hugmyndir Umbótahreyfingarinnar um beint lýðræði og alger skil hins þrískipta valds. Kom fram að núverandi hugmyndir, þar sem efst trónir forseti, síðan Alþingi, ríkisstjórn og að botninn skipi svo almenningur, væri ekki í lagi. Réttara væri að hugsa sér almenning og undir honum framkvæmda-, laga- og dómsvaldið í línu, þar sem ekkert er mikilvægara öðru.
Einnig kom fram hjá Jóni að það sé almennings að laga til í kerfinu, enginn annar komi til með að gera það. Vísaði hann til þess að þann 1. október nk. mun Alþingi verða sett og þá ættu allir að mæta á Austurvöll.
Hægt er að hlusta á þáttinn með því að nota vefspilarann hér fyrir neðan.
