Jón útskýrir fjármagnsframleiðsluna
Í morgunþætti Útvarps Sögu þann 21. nóvember skýrði Jón hvernig fjármagn verður til í bankakerfinu. Hvernig bankarnir búa til fjármagnið úr engu og lána það svo út gegn greiðslu vaxta.
Benti Jón á að fyrir nokkur hundruð árum hefðu einstaklingar náð að plata samfélögin til að gefa þeim einkaleyfi til fjármagnsframleiðslu, með því að fá fulltrúa þeirra til að halda að þetta væri samfélagslega hagkvæmt, þvert á það sem raunin er.
Vísaði Jón einnig til þess að Bretar og Frakkar gátu ekki fjármagnað Napóleon stríðin, en einhverjir austurrískir fjármálabarónar gátu fjármagnað stríðin fyrir báða aðila. Einnig nefndi Jón hvernig Lincoln hafði fjármagnað borgarastríðið með því að prenta peningana sjálfur, óháð vaxtaberandi bankalánum, öfugt við það sem suðurríkin gerðu.
Það er kominn tími til að almenningur átti sig á vitleysunni og leyðrétti óréttlætið sem fylgir því að einkaaðilar framleiði fjármagn samfélagsins úr engu og rukki fyrir það vexti.
Hægt er að hlusta á þáttinn með því að nota vefspilarann hér fyrir neðan.
