Jón Lárusson og Ragnar Þór Ingólfsson í Bítið á Bylgjunni þann 26.09.2011

Jón Lárusson, talsmaður Umbótahreyfingarinnar

Jón Lárusson og Ragnar Þór Ingólfsson ræddu spurninguna "er lögmætur eigandi skuldarinnar að rukka þig"? En þetta er spurningin sem varpað verður fram á borgarafundi sem haldinn verður í Háskólabíó í kvöld klukkan 20:00.

Einnig var velt upp hagsmunum verkalýðshreyfingarinnar með tilliti til hagsmuna einstaklinganna sem mynda hana. Var bent á að það væri spurning hvort þarna væri verkalýðsforystan að vinnan vinnuna sína.

Var bent á að einstaklingarnir sem eiga að gæta hagsmuna almennings eru frekar hluti af vandanum, heldur en að þeir séu hluti af lausninni. Þeir væru aðeins tannhjól í klukkuverki kerfisins.

Kom fram hjá Jóni að við höfum liðið skort vegna þess að fjármálakerfið hafi farið á hliðina. Almenningi er svo sagt að hann verði að styðja fjármálakerfið svo það geti byggt sig upp. Þetta sé svipað og ef fórnarlamb misnotkunar verði að styðja og byggja upp gerandann. Það gangi bara ekki upp.

Hægt er að hlusta á þáttinn með því að nota vefspilarann hér fyrir neðan.