Íslendingar þurfa að ákveða hvaða framtíð þeir vilja skapa sér

Í morgunþætti Útvarps Sögu frá mánudeginum 12. desember 2011, ræddi Jón Lárusson meðal annars um skuldavanda Evrópu og benti á að lausn á skuldavanda fælist ekki í að auka við skuldirnar. Svo lengi sem reynt væri að leysa skuldavandann á þennan hátt, þá væri fyrirsjáanlegt að vandi ESB væri kominn til að vera.

Benti Jón á að nú verið að laga bókhaldið, ekki ósvipað og gert var á Íslandi um og fyrir 2007. Það væri í raun verið að taka mismunandi vel eða illa stæð hagkerfi og slá þeim saman í eitt til að fá betra meðaltal fyrir sambandið í heild. Þetta væri svipað og þegar eigendur margra smærri félaga stofnuðu eignarhaldsfélög sem tækju yfir rekstur allra þeirra smærri.

Með þessu er ESB aðeins að ýta vandanum á undan sér, það sé í raun ekki verið að leysa nein mál. Eina niðurstaðan með þessu öllu, er í raun bara fullveldisafsal sambandsríkjanna til handa ESB.

Með tilliti til þess sem er að gerast í Evrópu, þá er mikilvægt fyrir okkur sem samfélag, að ákveða hvernig framtíð við viljum. Við höfum í dag valdið og getuna til þess, en ef við drögum það að móta okkur þá framtíð sem við viljum, þá kemur einhver til með að gera það fyrir okkur. Það er svo spurning hvort sú framtíð sé okkur þóknanleg.

Frelsið kostar ekkert að halda því, en það kostar mikið að endurheimta það komi til þess að við glötum því.

Íslendingar og íslenskt samfélag hafa alla burði til að skapa gott, sanngjarnt og auðugt samfélag, ef viljinn er til þess.

Hægt er að hlusta á þáttinn með því að nota vefspilarann hér fyrir neðan.