Hvar valdið liggur og vissan um að verið sé að gera rétt
Jón Lárusson ræddi deilur forseta og forsætisráðherra um hvers sé valdið, í morgunþætti Útvarps Sögu í morgun. Benti hann á að það væri kominn tími til að árétta það að valdið kemur ekki frá forseta, forsætisráðherra eða Alþingi ef því er að skipta, heldur kemur valdið frá fólkinu. Það sé kominn tími til að almenningur krefjist aftur valdsins sem er með réttu þess.
Einnig ræddi hann um það að til að einstakling sé trúað, þá þarf hann að vita hvað sé rétt að gera í stöðunni, ekki að hann vonist eða trúi því að hann sé að gera rétt.
Benti Jón á að það væri ákveðinn grundvallar munur á því að trúa því að eitthvað sé rétt og að vita að eitthvað sé rétt. Felst munurinn í því að trú felur í sér ákveðinn efa, en vissa gerir það ekki. Sá sem veit, efast ekki um að hann sé að gera rétt.
Hægt er að hlusta á þáttinn með því að nota vefspilarann hér fyrir neðan.
