Góður fundur í Höfðatúni 12
Í gær var haldinn fundur í Höfðatúni 12 þar sem kynntar voru hugmyndir Umbótahreyfingarinnar að nýju fjármálakerfi auk þess sem farið var yfir núverandi kerfi og ástæðurnar fyrir því að það er ekki að virka í dag.
Vakti fyrirlesturinn mikla athygli og spunnust miklar og áhugaverðar umræður á eftir. Upphaflega hafði verið áætlað að fundurinn stæði til klukkan 22:00, en vegna áhuga fundargesta lauk honum ekki fyrr en að ganga 24:00.
Mikill hugur var í fundargestum og voru flestir sammála um að það þyrfti að breyta núverandi kerfi og nú væri tíminn til þess. Var ákveðið að setja af stað vinnu til að finna leiðir til að koma hugmyndunum á framfæri og vinna þeim fylgi.
Aðstandendur fundarins voru mjög ánægðir með viðbrögðin við fundinum og vilja koma á framfæri þakklæti til þeirra sem voru á staðnum og hlakka til að vinna með þessu áhugasama fólki