Fjármálakerfið og borgarafundur umræðuefnið á Útvarpi Sögu hjá Jóni Lárussyni þann 26.09.2011
Nýjustu fréttir af skuldaniðurfærslum gríska ríkisins voru ræddar á Útvarpi Sögu, en Jón Lárusson benti á að þarna væri verið að afskrifa skuldir, eitthvað sem við máttum ekki gera. Það væri ekki endir heimsins að borga ekki skuldirnar. Benti Jón líka á að lausn AGS á skuldavandanum, væri í átt til þess að ætla að þurka alkhólista með því að hella í hann áfengi. Það gengi ekki upp.
Kom fram í þættinum að ein mesta hindrunin fyrir breytingum, væri þrælslund og innræting sem hefur átt sér stað allt frá fæðingu hvers einstaklings. Birtist þetta í því að almenningur er frekar tilbúinn að svelta börnin sín, heldur en að sleppa því að borga lánin.
Hægt er að hlusta á þáttinn með því að nota vefspilarann hér fyrir neðan.
