Að þekkja orsökina er grunnurinn að lausn núverandi ástands

Jón Lárusson, talsmaður Umbótahreyfingarinnar

Það að fimm einstaklingar hverfi af landi brott á hverjum degi, var til umræðu hjá Jóni Lárssyni á Útvarpi Sögu í morgun. Benti hann á að til þess að einstaklingar tæki slíka ákvörðun, þá þurfi að vera til staðar slík uppgjöf og vonleysi að það veki upp spurningar um það hvernig þjóðfélag við búum í.

Benti Jón á það að við höfum horft til fortíðar allt of lengi og erum í raun föst í fortíðinni og á meðan svo er, þá munum við ekki geta horft til framtíðar, hvað þá haldið þangað. Það væri nauðsynlegt að greina ástandið og finna orsökina. Aðeins þannig gætum við leyst úr okkar málum.

Fór Jón yfir forsendur núverandi ástands og benti á hvaða lausnir eru til staðar. Það er til einskis að vinna að lausn ef menn þekkja ekki orsökina.

Hægt er að hlusta á þáttinn með því að nota vefspilarann hér fyrir neðan.