Myndband af fundi Umbóthreyfingarinnar þann 23. júní 2010


Athugið að myndbandið tekur smá stund að byrja.

Mikill áhugi hjá fundarmönnum á miðvikudaginn

Mikil ánægja var með fundinn sem haldinn var á miðvikudaginn. Var ánægjulegt að sjá hversu margir komu klukkan 19:00, á kynninguna sem endurtekin var frá því á þriðjudaginn 15. júní. Var þar bæði um að ræða einstaklinga sem höfðu verið á þriðjudaginn, en ekki síður nýja einstaklinga sem vildu kynna sér málið.

Breyting á fundartíma þann 23. júní 2010

Við höfum verið beðnir um að endurtaka kynningarfundinn frá því í síðustu viku vegna mikils áhuga.

Því hefur verið ákveðið að endurtaka hann á morgun, miðvikudag 23. júní kl. 19:00, áður en fyrirhugaður vinnufundur byrjar kl. 20:00 . Við hvetjum ykkur eindregið að benda fólki sem þið þekkið á fundinn.

Hlökkum til að sjá ykkur.

Vinnufundur miðvikudaginn 23. júní

Haldinn verður vinnufundur þann 23. júní nk. kl. 20:00. Verður fundurinn haldinn í Höfðatúni 12 og eru allir áhugasamir velkomnir.

Góður fundur í Höfðatúni 12

Í gær var haldinn fundur í Höfðatúni 12 þar sem kynntar voru hugmyndir Umbótahreyfingarinnar að nýju fjármálakerfi auk þess sem farið var yfir núverandi kerfi og ástæðurnar fyrir því að það er ekki að virka í dag.

Vakti fyrirlesturinn mikla athygli og spunnust miklar og áhugaverðar umræður á eftir. Upphaflega hafði verið áætlað að fundurinn stæði til klukkan 22:00, en vegna áhuga fundargesta lauk honum ekki fyrr en að ganga 24:00.

Fundur um nýtt fjármálakerfi 15. júní 2010

Þriðjudaginn 15. júní kl. 20:00 verður haldinn fyrirlestur á vegum Umbótahreyfingarinnar í Höfðatúni 12, þar sem kynntar verða hugmyndir að nýju fjármálakerfi. Umbótahreyfingin telur nýtt fjármálakerfi einu raunhæfu leiðina til að binda enda á núverandi ástand með raunverulegum lausnum.

Núverandi fjármálakerfi getur aldrei orðið til neins annars en aukinnar skuldsetningar almennings og ríkis með þeim afleiðingum að raunveruleg værðmæti leita á hendur sífellt færri einstaklinga og félaga.

Aðgerðaráætlun vegna efnahagsástands

Umbótahreyfingin - Nýtt samfélag telur að nú sé ekki hægt að bíða lengur með aðgerðir til handa heimilum landsins. Fjöldinn allur af einstaklingum og fjölskyldum er að tapa húsnæði sínu, ekki vegna óráðsíu og bruðls, heldur vegna þess að ytri aðstæður og aðgerðaleysi stjórnvalda hefur komið þeim í vandræði. Nú fer í hönd tímabil þar sem einstaklingar sem ekkert hafa til unnið, munu tapa eigum sínum í slíku magni að vart verður séð að samfélagið muni jafna sig á því nema yfir mjög langan tíma.

Tilgangur hreyfingarinnar

Umbótahreyfingin er stofnuð í þeim tilgangi að stuðla að breyttu umhverfi í íslensku samfélagi.

Það er skilningur félagsmanna að rót efnahagsvanda samfélaga sé bundin í því kerfi sem viðgengst í dag. Tilgangur félagsins er að koma á nýju fjármagnskerfi þar sem aukin hagsæld leiðir til eignar í stað skuldar.

Syndicate content

Áhugaverð myndbönd